top of page

Útferð

Stelpur fá oft útferð þegar þær byrja á blæðingum.


Útferð er vökvi sem er slímugur og kemur úr leggöngum (píkunni).

Stelpur eru flestar með einhverja útferð á hverjum degi. [7]

Eðlileg útferð

  • Er ljósgul, hvít eða glær
  • Getur verið brún stuttu eftir að stelpa klárar blæðingar
  • Lætur þig ekki klæja
  • Er með lítilli lykt

Óeðlileg útferð

  • Er dökkgul eða ljósgræn
  • Lætur þig klæja, svíða eða fá roða
  • Er með mikilli lykt
  • Verður allt í einu mikil
  • Er kekkjótt

Ef þú ert með eitthvað af þessum einkennum skaltu fara til læknis. Þú gætir verið með sýkingu í leggöngum eða með kynsjúkdóm. [7]

bottom of page