top of page

Hvað er kynlíf

Kynlíf snýst ekki bara um að stunda samfarir.



Kynlíf er þín upplifun að vera karl eða kona. Kynlíf er að vera náinn annarri manneskju.
Kynlíf getur þá verið að kyssa, strjúka eða faðma aðra manneskju.



Kynlíf er mjög persónulegt og því þarftu að treysta og virða manneskjuna sem þú stundar kynlíf með. [12]



Kynlíf getur verið að hafa munnmök.
Kynlíf getur verið að stunda sjálfsfróun.
Kynlíf getur líka verið milli tveggja karla og tveggja kvenna. 



Þú skalt bara stunda kynlíf ef þú ert tilbúin/n og vilt það.

kynlíf samfarir

Klám

Klám er oft útskýrt á marga vegu og eru ekki allir sammála um hvað klám er.



Við sjáum klám til dæmis í bíómyndum, blöðum, tónlistarmyndböndum og á netinu.

Klám er oft það fyrsta sem manneskjan skilur og lærir um kynlíf.

Klám sýnir samt ekki rétta mynd af kynlífi.

Klám er ekki kynlíf !



Klám getur verið misnotkun, ofbeldi eða niðurlægjandi mynd af manneskju.


Klám hefur ekki góð áhrif á fólk.

Karlar sem horfa mikið á klám eru líklegri til að beita konum ofbeldi og halda að konur vilji láta nauðga sér. [13]

bottom of page