top of page

Samfarir

Þegar karl og kona hafa samfarir fer typpið inn í leggöngin. Hann, hún eða bæði hreyfa sig fram og til baka.

Þegar karl og kona stunda samfarir getur barn orðið til.



Samfarir karls og konu hefjast yfirleitt með forleik.

Forleikur er þegar karl og kona kyssast og snerta kynfæri hvors annars.

samfarir kynlíf kynmök ríða sofa hjá standpína kynfæri forleikur

Við snertingu stækkar typpið á strákum og verður hart. Þeir fá standpínu.

Við snertingu á kynfærum stúlkna verða leggöngin blaut.

Áður en typpið fer inn í leggöngin þarf typpið að vera í standpínu og leggöngin blaut. [15]

Að hafa samfarir er líka oft kallað: Kynmök, að ríða, að sofa hjá.

Fyrsta skipti sem stelpur eða strákar stunda samfarir getur verið vont.


Stelpur geta lent í því að það blæðir sem er alveg eðlilegt. [16]


Best er að fara rólega í fyrsta skiptið og gæta þess að leggöngin séu nógu blaut.

bottom of page