top of page

Sjálfsfróun

Sjálfsfróun er þegar strákur eða stelpa nuddar á sér kynfærin (typpið eða píkuna) til að líða vel og fá jafnvel fullnægingu.

Það er stundum kallað að fróa sér eða runka sér.

​
Sjálfsfróun er mjög eðlilegur hlutur en svo er líka eðlilegt að fróa sér ekki.

​
Það er mjög misjafnt hversu mikinn áhuga og hversu mikla þörf hver og einn hefur fyrir að fróa sér.

​
Ef þú vilt stunda sjálfsfróun er mikilvægt að þú sért einn með sjálfum þér, til dæmis inn í herberginu þínu. [18]

Strákar

Þegar strákar fróa sér taka þeir utan um typpið með hendinni og færa síðan hendinni fram og til baka.


Sumir strákar vilja hafa höndina ofarlega en aðrir neðarlega.


Sumum strákum finnst gott að fara hratt en öðrum hægt.


Sumum strákum finnst gott að nudda forhúðina​ við kónginn en öðrum þykir gott að nudda kónginn beint með hendinni.

fróa sér runka

Strákar eru oft fljótir að finna út sjálfir hvað þeim þykir gott. [19]

fróa sér nudda snípinn

Stelpur

Þegar stelpur fróa sér nudda þær oft og strjúka snípinn en snípurinn er mjög næmur fyrir snertingu. [20]

Sumar stelpur vilja fróa sér með því að setja fingur inn í leggöng.

Sumum stelpum finnst líka gott að snerta brjóstin þegar þær eru að fróa sér. [20]



Stelpur eru oft fljótar að finna út sjálfar hvað þeim þykir gott.

bottom of page