top of page

Hettan

Hettan er örugg getnaðarvörn ef henni er rétt komið fyrir í leggöngum.

Hettan er mjúk gúmmíhetta sem sett er hátt upp í leggöng fyrir samfarir til að loka leghálsinum. Hettan kemur í veg fyrir að sáðfrumur komist inn í legið.

Hettan verður öruggari ef sæðisdrepandi krem er sett á hana.

Hettan er ekki mikil vörn gegn kynsjúkdómum en kemur í veg fyrir að barn geti orðið til.

Hægt er að fá hettuna hjá lækni. [32]

getnaðarvarnir hettan leggöng legháls sæðisdrepandi krem kynsjúkdómar
bottom of page